Já bara brjálað að gera hjá minni..híhi.
Ég átti nokkra daga síðan á síðasta ári í sumarfríi og nýtti þá
ansi vel í síðustu viku. Eftir að Villinn var búinn að skella einni
umferð af málningu á stofuveggina þá ákváðum við að skella okkur í
1-2 nætur í bústað á Apavatni þar sem Boggi & Halla dvöldu í já
má segja bara næstum höll í stað bústað.
Verð nú að viðurkenna
þetta var flottur bústaður en stundum vill maður hafa smá
bústaðafílinginn þegar maður fer í bústað..hehe. Eða ég vil það.
Æðislegt að slaka á eftir allt saman og bara vera með vinum. Takk
fyrir okkur aftur krútt...
Nú á sjálfann afmælisdaginn hans Villa brunuðum við í bæinn,
vöknuðum fyrir allar aldir og brunuðum í bæinn um morguninn því ég
þurfti að mæta til ljósmóðurinnar. Þetta var bara viðtal ivð lækni
um mjaðmagrindina hjá mér...en ég misskildi tímann og skrifaði
vitlausann nður...ehemm. svo við töluðum bara við Áslaugu ljósmóður
í staðinn.
Villi náði loksins að klára málningavinnuna í bili...já í bili,
á ganginn eftir. Því nú var búið að blása til veislu til heiðurs
eiginmannsins sem átti afmæli og einnig að fá foreldrana í
heimsókn.
Næst þegar þau koma öll í heimsókn þá verður lítið
kríli hér...ha...magnað. Allt var á fullu hér að gera klárt og mér
féllust hendur um morguninn því það var allt á hvolfi hér svo ég
hringdi í bjargvættinn hana stóru systur mína sem sá sig auma og
vorkenndi óléttri litlu systur sinni og kom og bjargaði mér
algjörlega.
Við fórum saman að versla í allt og í Ikea að
kaupa nýjar gardínur og alles.... Það endaði líka með að stóra
systir gerði kökuna svona næstu því og já, bjargaði mér alveg.
Villi var að klára gera stofuna klára svo stofan var nú sómaleg um
4 leytið og þá loksins gátum við systur athafnað okkur í stofunni
og komið dótinu fyrir.... VÁ hvað munar um núna að allt sé hvítt og
flott...vá..bara allt annað. Af hverju gerðum við þetta ekki
fyrr....össss. Nú afmælið heppnaðist að vanda og ég þakka bara
minni elskulegu stóru systur fyrir hjálpina...alltaf til staðar
fyrir mann þessi elska og gerir allt sem hún getur til að hjálpa
manni. TAKK enn og aftur.
Jör ðe best!
Guggý gæs var svo gæsuð um helgina. Mikið búið að plana og
spekúlera hvað ætti nú að gera við elsku gæsina. Enduðum í
magadansi & nuddi á Lofteiðum. Ætluðum í keilu en það var víst
ekki mikið pláss fyrir okkur allar þar. Fórum svo heim til Hrundar
vink Guggýjar og endðuðum í Singstar, mat og partýi...þetta var ógó
gaman og Guggý held ég var alveg að fýla þetta.. Endaði svo kvöldið
á að fór heim, Villi sótti mig og svo helltist þetta skemmtilega
kvef í mig. Hausverkur-þyngsli í höfðinu og bara kverkadrulla í
hálsinn....ég lá allan sunnudaginn og náði að sofa meir en ég
gat.
Er öll að koma til.
Í dag var svo stór dagur í skoðun. Fór á LSH mæðraverndina í
monitor-skoðun og vaxtasónar.
Gekk mjög vel. Allt lítur
svona vel út og daman er búin að skorða sig alveg ofan í grindina
sem þýðir að ég á alveg að geta átt á venjulegan máta. Skoðaði
röntgenmyndirnar sem teknar voru í gær og sá þá hvar hún var alveg
komin ofan í þrengsta. Sögðu þau að ég ætti engar áhyggjur hafa af
væntanlegri fæðingu og ef allt kemur fyrir og daman vill ekki
lengra þá er bara keisari. Sat í monitornum í 40 mín næstum þvi og
það kom vel út, hjartsláttur og allt það eðlilegt hjá henni. Nú á
ég að koma 2x í viku í monitor en má halda áfram á minni
heilsugæslu það sem eftir er...já það eru bara 3 vikur!
Spáið í því....
Í sónarnum kom út að hún er orðin 13.5 merkur!
Ekki stækkað neitt voða mikið og voru þær bara ánægðar með það.
Legvatnið var ekki mikið en það var það víst síðast svo þetta er
allt bara á réttri leið. Ég verð að halda áfram að vera dugleg á
grænfóðrinu og passa vel sykurinn því ég ætla mér ekki að fá 19
marka barn takk fyrir. Ef ég get haldið þessu niðri með matarræði
þá er það hið besta mál og ekki spurning um að halda þessu áfram
svona.
Nú svo erum við hjónin eiginlega bara að byrja fæðingarorlofin.
Villi er kominn í sumarfrí eftir daginn í dag og ég er svona frekar
laus í vinnu...ekki komin enn en búin að minnka töluvert við mig
enda er að síga á seinnihlutann. En líður annars mjöööög vel.


Ein bumbumynd í lokin, 37 vikur1
æja ritgerðin búin í bili...hehe.
Over
Ragga bumba